mánudagur, desember 01, 2003
Í fréttum er þetta helst.....
Jæja, þá er mánudagurinn að kvöldi kominn! Ég fór til RVk á föstudagsmorgun og verslaði nokkrar jólagjafir, horfði á Gunnar keppa, kíkti á djammið, hitti ættingja og vini og lærði með Betu! Ég keypti svo mikið af drasli, fannst mér ,því ég eyddi svo miklum peningum, en svo þegar maður kemur heim er þetta ekkert svo mikið af dóti.....En nú á sko að taka til hendinni og skreyta hjá sér, setja seríur í gluggana og dúllerí:)það verður gert eftir Survivor:)Ég þarf nú að fara setja saman óskalista fyrir jólin, þetta gengur ekki, allir að spyrja mig og mér dettur ekkert í hug, svei mér þá! En fyrst það er kominn 1.des er þetta námskeið þá ekki búið....?
Gleðileg jól til allra and gúd bæ:)
http://www.islandia.is/systah/images/cuteman.jpg
Gleðileg jól til allra and gúd bæ:)
http://www.islandia.is/systah/images/cuteman.jpg
þriðjudagur, nóvember 25, 2003
veit aldrei hvað ég á að skrifa hér......
Jæja, mikið er ég fegin að vettvangsnámið skuli vera búið:) Þá kemst líka allt í sinn vana gang hjá bekknum mínum, nemendurinir voru orðnir frekar pirraðir yfir því að vera fá einhverja forfallakennara í staðinn fyrir mig( reyndar ekki nema 4 tímar á viku). Í næstu viku byrja svo prófin hjá þeim og eftir það ætlum við að föndra fyrir jólin, þá verður sko gaman! Á miðvikudagskvöldið var keyrt á bílinn okkar! Hann var kyrrstæður og er líklegast ónýtur:( fáum að vita á morgun hvað verður gert í málinu, hvort það taki því að gera við hann! Um helgina bakaði ég mínar fyrstu smákökur:) Það var ofsalega gaman en kökurnar voru ekkert ofsalega fallegar en bragðgóðar:) Ég er nú samt ekki búin því þetta var svona prufa, ég á eftir að baka alvöru smákökur, það er hefð fyrir því að borða smákökur og drekka heitt kakó á aðventunni hjá mér. við fengum líka Gauta dúllu í heimsókn um helgina og það var sko fjör hjá okkur, eins og alltaf. Jæja, verð eiginlega að fara að hætta núna, er að deyja úr þreytu og klukkan varla hálf tíu.....:)
miðvikudagur, nóvember 19, 2003
styttist óðum.....
Jæja, nú styttist óðum í að vettvangsnámið klárist! Klára á föstudaginn og mikið ofsalega verður andað léttar:) Það er miklu meira en að segja það að vera í þessu vettvangsnámi og þetta er líka síðasta vettvangsnámið mitt í náminu að þessu sinni:) Á föstudaginn ætla ég að fara með nemendunum í 9.bekk í sagnorðaleik sem ég bjó til. Sagnoðrin eru ekkert ofsalega spennandi en verða það kannski með leik:)
Mikið ofsalega hlakka ég til þegar hún Anna Rós kemur með litla prinsinn sinn til Eyja:) Ætli maður mæti nokkuð í vinnuna.....:) Það verður sko stuð hjá okkur í sumar því ég verð í sumarfríi og hún líka og ætlum við svoleiðis að njóta veðursins og þess á milli ætla ég að spila golf:) Jibbý hvað það verður gaman!!:)
23. desmeber ætla ég að leggja land undir fót og fara til Flórída(Orlando) og vera þar um jóla og áramót með kærastanum og tengdafjölskyldu. Það verður örugglega mjög skrítið að vera ekki hjá mömmu sinni á jólunum...:/ Ég kem svo heim 3. janúar á undan öllum því ég þarf að mæta í staðlotuna 5.jan.
Ég er einnig búin að plana aðra utanlandsferð en hún verður frá 9. júní - 15. júní. Þá ætlum við kennararnir að fara og skoða umhverfisvæna skóla og heilsuskóla í Kaupmannahöfn það er nefninlega þannig átak í gangi hjá okkur í skólanum, það verður örugglega mjög gaman:)
Nú þarf ég að fara á fund...
bless í bili.....

mánudagur, nóvember 17, 2003
Vinnuvikan hafin....
jæja, mikið ofboðslega var gott að vera í helgar"fríi". Ég gerði margt um helgina! Það er fastur liður hjá mér að taka ibúðina í gegn um helgar eftir uppsafnað drasl vikunnar...:)Sá liður var á sínum stað! Ég horfði að sjálfsögðu á Idolið og mitt fólk komst áfram:) Ekki mikið meira gert á föstudeginum. Á laugardaginn lærði ég svolítið frá 14 - 18 og fór svo að elda kjúkling. Vinir hans Gunnars komu svo til okkar um kvöldið með kærusturnar sínar og fórum við í Partý og co og Trivial, það var fínt því það var fengið sér einn öl með:) ekki farið að sofa fyrr en um 2! Svo var rifið sig fram úr á sunnudeginum kl. 10 og náð í Gauta krútt og farið í Sunnudagaskólann kl. 11, það var rosa gaman:) Skiluðum Gauta kl. 14, þá kíktu Ester frænka og Viðar í heimsókn en stoppuðu stutt. Eftir það var farið og lært til kl. 17. Ég eldaði hrygg í fyrsta skiptið í gær og bauð systur minni í mat, þetta var geðveikt góður matur!!! Svo var farið í ísbúðina og fengið sér ís og tekið spólu og horft á fram eftir kvöldi:) Má ekki gleyma að minnast á það að ég náði í kassann inn í geymslu með jóladótinu mínu og kíkti aðeins á það, hengdi bara smá upp en þurrkaði af hinu:)
Nú er Gunnar byrjaður að æfa aftur eftir mánaðarpásu eða svo, ekki veitir að því innanhúsmótið er eftir 2 vikur:)
læt þetta duga í bili...
Nú er Gunnar byrjaður að æfa aftur eftir mánaðarpásu eða svo, ekki veitir að því innanhúsmótið er eftir 2 vikur:)
læt þetta duga í bili...
föstudagur, nóvember 14, 2003
jæja....
Þá er ég loksins búin að setja inn rétta slóð fyrir heimasíðuna mína sem er hér og ég held að hún sé alveg að verða tilbúin, nema ég á eftir að setja inn samskiptaleiðir þar, en er þó búin að prufa þær;)
En mikið er ég fegin að vikan sé loksins búin, þó svo að við taki lærdómur um helgina þá er alltaf gott að komast frá vinnustaðnum sínum:)
Svo er ég komin í smá jólaskap, ætla að reyna að baka mínar fyrstu alvöru smákökur um næstu helgi, sjáum nú til hvernig það gengur......:)

þriðjudagur, nóvember 11, 2003
Þetta er frekar fyndið:)
Var að prófa gsm blogg:)
prófið að hlusta á prufuna mína, vona að hún virki:)
fimmtudagur, nóvember 06, 2003
vefurinn kominn inn
Hér er slóðin en vantar samt nokkuð að laga síðuna
Jæja.....
Var að reyna publisha vefnum í 10. skipti en það kemur alltaf upp villa að serverinn hafi óvænt closed the connection.....hvað er eiginlega í gangi á þessum bæ??!!
þriðjudagur, nóvember 04, 2003
ekkert að gerast!
Það gerist ekkert ennþá í vefsíðumálunum hjá mér, skil bara ekki hvað ég gerði vitlaust!Er búin að fara aftur og aftur yfir vefinn en ekkert gerist því miður.....:(